Börn í fyrirrúmi
Á Umhuga.is getur þú nálgast á einum stað upplýsingar um helstu þætti í uppeldi og aðstæðum barna og unglinga sem hafa áhrif á geðheilsu þeirra á uppvaxtarárunum og þá um leið seinna í lífinu. Þú finnur hér einnig upplýsingar um þunglyndi og kvíða og upplýsingar um hvert er hægt að leita til að fá aðstoð.
Upplýsingarnar eru ætlaðar foreldrum og öðrum uppalendum, fagfólki sem vinnur með börnum og unglingum á einn eða annan hátt og ekki síst börnum og unglingum sem vilja fræðast um þessi mál.
Efninu hér á vefnum er ekki ætlað að vera tæmandi. Þeir sem vilja glöggva sig betur geta fundið ítarlegri umfjöllum í heimildalista. Heimildirnar eru flokkaðar eftir efni og eru fengnar úr vísindaritum. Þær eru ætlaðar jafnt fagfólki og öðrum sem áhuga hafa á dýpri fróðleik um einstök efni. Enn fremur eru hér safn tengla inn á vefsetur annarra stofnana og félaga, innlendra sem erlendra, með gagnlegum upplýsingum.
Auk þessa ítarefnis bjóða aðstandendur verkefnisins upp á fyrirlestra og námskeið fyrir áhugafólk og fagfólk þar sem farið verður nánar út í einstaka efnisþætti, allt eftir séróskum hópa og vinnustaða. Til dæmis geta foreldrafélög og félög aðstandenda barna og unglinga með hegðunarvandamál og/eða geðraskanir beðið um slíka fræðslu. Nánari upplýsingar veitir Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri hjá Landlæknisembættinu, s. 510 1900, salbjorg@landlaeknir.is.
Umhuga.is er forvarnarverkefni á vegum Þjóðar gegn þunglyndi og samstarfsaðila þess. Þjóð gegn þunglyndi hefur frá stofnun beint spjótum sínum að þunglyndi og sjálfsvígum fullorðinna, m.a. í samstarfi við European Alliance Against Depression. Nú verður forvarnaraðgerðum beint að aðstæðum barna og unglinga.
Október 2008