20.01.2010
Geðheilbrigði barna - fræðsluefni
| |
| |
Bæklingarnir voru kynntir 15. janúar síðastliðinn á árlegri ráðstefnu BUGL ,,Snemma beygist krókurinn - Bjargráð og þjónusta í nærumhverfi" sem haldin var í Þróttarsalnum, Engjavegi 7 í Laugardal.
Ákveðið var að ráðast í gerð fræðslubæklinganna í ljósi þess að ekkert efni var til á íslensku um þetta efni en þörfin fyrir fræðslu sem þessa er mjög brýn. Meðal þess sem fjallað er um í bælingunum er:
Hvað er geðheilsa?
Hvað truflar geðheilsu?
Helstu merki um geðheilsuvandamál.
Hvernig nálgast má aðstoð ef vanda ber að höndum?
Nokkur góð ráð sem styrkt geta geðheilsuna.
Bæklingurinn fyrir unga fólkið brýst saman þar til hann er nægilega lítill til að hægt sé að setja hann í vasann eða töskuna en sá fyrir aðstandendur er í hefðbundnara broti.
Hægt er að skoða bæklingana hér á vefnum og prenta þá út:
- Geðheilsa barnsins þíns – Bæklingur fyrir aðstandendur barna. Það sem sérhver fjölskylda ætti að vita (PDF)
- Geðheilsan þín skiptir máli! Bæklingur fyrir unglinga (PDF)
Einnig er hægt að panta þá á: http://www.lydheilsustod.is/utgafa/baekur-baeklingar-listar-rit/gedraekt
Salbjörg Bjarnadóttir
verkefnisstjóri