Barnaverndar- nefndir

 
Barnaverndarnefndir


Í barnaverndarlögum nr. 80/2002 er kveðið á um skyldu fólks til að tilkynna barnaverndarnefnd ef það verður þess víst að barni sé misboðið, uppeldi þess vanrækt eða aðbúnaði þess sé svo áfátt að barninu geti stafað hætta af.

Sérstakar skyldur til að gera barnaverndarnefnd viðvart hafa þeir sem stöðu sinnar vegna eru líklegir til að þekkja til aðstæðna barna, svo sem nánir ættingjar eða nágrannar, kennarar, læknar, hjúkrunarfræðingar, prestar og félagsráðgjafar. Lögregla skal tilkynna til barnaverndarnefndar um tilvik þegar grunur leikur á að refsiverður verknaður hafi verið framinn, annað hvort af barni eða gegn því.

Hverjum manni er skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart ef hann verður þess var að barn sæti vanrækslu eða illri meðferð og er rétt að hafa tafarlaust samband við barnaverndaryfirvöld þar sem barnið á lögheimili og tilkynna um málið. Einstaklingar sem tilkynna slíkt geta óskað nafnleyndar gagnvart fjölskyldu barnsins en opinberir aðilar njóta ekki nafnleyndar.

Starfsmenn barnaverndarnefnda annast móttöku og mat tilkynninga um óviðunandi aðbúnað barna á aldrinum 0–18 ára, kanna aðbúnað þeirra, gera meðferðaráætlanir og fylgja þeim eftir, veita stuðning og hafa með höndum eftirlit ef þörf er á.

Í samvinnu við Barnaverndarstofu annast nefndirnar einnig málefni fósturbarna, vistanir barna á meðferðarheimilum og einkaheimilum auk umsagna í umgengnismálum og ættleiðingarmálum, gera úttektir á fósturheimilum og meta hæfni stuðningsfjölskyldna.

Barnaverndarnefndir á Íslandi eru 34 talsins og er nefndunum skylt að taka á móti tilkynningum þegar þær berast og eðli máls samkvæmt getur reynst nauðsynlegt að tilkynna mál á öllum tímum sólarhrings. Tilkynningum til nefndanna má koma til skila gegnum neyðarlínuna 112.

Barnaverndarnefndir hafa yfir ýmsum stuðningsúrræðum að ráða fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

Stuðningsúrræði

  • Viðtöl við sérfræðinga, félagsleg ráðgjöf, uppeldisleg ráðgjöf o. fl.
  • Persónulegir ráðgjafar.
  • Tilsjónarmenn inn á heimilið.
  • Stuðningfjölskyldur fyrir börn.
  • Stuðningurinn heim, uppeldisráðgjöf inn á heimili í 6–8 vikur.
  • Greining og kennsla inn á heimili í  8 vikur.
  • Fjölskyldumeðferð/ráðgjöf.
  • Sumarúrræði fyrir börn/unglinga.
  • Hópastarf fyrir börn.
  • Einnig er vísað í stuðningsúrræði á þjónustumiðstöðvum.

Vistun barna utan heimilis

  • Einkaheimili.
  • Varanlegt fóstur.
  • Tímabundið fóstur.
  • Styrkt fóstur.
  • Vistheimili barna.
  • Meðferðarheimili.
  • Fjölskylduheimili.
  • Stuðningssambýli  fyrir unglinga.



Barnavernd Reykjavíkur
Barnaverndarnefndir starfa í öllum landsfjórðungum en Barnavernd Reykjavíkur er stærst þessara nefnda. Skrifstofa Barnaverndar Reykjavíkur var stofnuð 1. september 2008 og færðust þá allar tilkynningar og vinna vegna barnaverndarmála í Reykjavík á einn stað. Barnavernd Reykjavíkur vinnur í samvinnu við þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar og á samstarf við fjölmarga aðra aðila. Má þar nefna samstarf við skóla, leikskóla, lögreglu, sjúkrahús og heilsugæslu.

September 2008

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli