Miðstöð heilsuverndar barna


 
Miðstöð heilsuverndar barna

Miðstöð heilsuverndar barna er miðstöð heilsuverndarstarfs á landsvísu fyrir börn og ungmenni yngri en 18 ára. Hlutverk Miðstöðvar heilsuverndar barna (MHB) er að styrkja heilsuvernd barna í landinu með því að vera faglegur bakhjarl heilsugæslustöðva. Í því felst meðal annars að leiða þróun og samræmingu þjónustunnar auk þess að sinna sérhæfðri þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
 
Á Miðstöð heilsuverndar barna er starfseminni skipt í þrjú fagsvið, ung- og smábarnasvið, skólasvið og þroska- og hegðunarsvið. Fagsviðin hafa skilgreind hlutverk og verksvið, en styðja að auki hvert annað og sinna verkefnum þvert á sviðin eftir aðstæðum.

Almenn heilsuvernd barna byggist á ung- og smábarnavernd og skólaheilsugæslu. Hin hefðbundna ung- og smábarnavernd fer fram á heilsugæslustöðvum og hefur það markmið að styðja við heilsu og þroska barna frá fæðingu til 6 ára aldurs. Þá tekur skólaheilsugæslan við, en skólasvið MHB styður við heilsuverndarstarf á vegum heilsugæslunnar í um 180 skólum í landinu.

Frávik í þroska eða hegðun
Ef grunur vaknar um frávik í hegðun eða þroska barna, á hvaða aldri sem þau eru, er viðeigandi úrræða leitað. Þroska- og hegðunarsvið MHB gegnir mikilvægu hlutverki í þessu efni, en það hefur með höndum að þróa, leiða og samræma skimun, mat og eftirfylgd á þroska og hegðun barna sem sýna einhver merki um frávik að mati fagfólks, ýmist innan heilsugæslu eða annars staðar.

Helstu verkefni:

  • Greining þroska- og hegðunarfrávika hjá börnum.
  • Ráðgjöf fyrir foreldra og fagfólk.
  • Gerð fræðsluefnis og námskeiðahald.


Greining þroska- og hegðunarfrávika
Markmið greiningar er að finna frávik eins snemma og kostur er svo að hægt sé að grípa inn í með viðeigandi úrræðum. Beiðnir um greiningu þurfa að berast frá fagfólki á sérstökum tilvísunareyðublöðum sem meðal annars er að finna á vefsetri MHB.

Vísa má börnum að 6 ára aldri í frumgreiningu þegar áhyggjur af þroska eða hegðun koma fram, til dæmis við hefðbundna skoðun í ung- og smábarnavernd. Frumgreining er skilgreind sem fyrstu formlegu athuganir eftir að grunur vaknar um frávik. Nánari greining býðst börnum á aldrinum 5–9 ára þegar sterkar vísbendingar um athyglisbrest, ofvirkni og skyld frávik í hegðun og/eða líðan hafa komið fram við frumgreiningu.

Ráðgjöf, eftirfylgd og fræðsla
Eftir greiningu fá foreldrar ráðgjöf og mælt er með viðeigandi þjónustu í skóla og nærumhverfi, meðal annars með myndun sérstaks eftirfylgdarteymis fyrir barnið. Eftir þörfum er vísað á önnur meðferðarúrræði eða í nánari greiningu. Að auki hefur ýmiss konar fræðsluefni verið útbúið fyrir foreldra og fagfólk og sérhæfð námskeið eru í boði fyrir foreldra og börn.

Á þroska- og hegðunarsviði starfar þverfaglegt teymi sem í eru barnalæknir, barnageðlæknir, sálfræðingur, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari og félagsráðgjafi.

September 2008

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli