1717 – Hjálparsíminn

 

 1717
Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er landsverkefni allra deilda Rauða krossins og er sími fyrir fólk  sem þarf aðstoð vegna einhvers konar vanda sem að steðjar, s.s. depurðar, kvíða, þunglyndis eða sjálfsvígshugsana.

 

Markmið Hjálparsímans er að vera til staðar fyrir fólk á öllum aldri sem líður illa og þarf að ræða við einhvern sem er tilbúinn að hlusta.

 

Flest símtöl sem berast eru vegna  sálrænna vandamála, geðraskana, þunglyndis og kvíða. Einnig berast margar hringingar vegna félagslegra vandamála, neyslu áfengis og fíkniefna, sjálfsvígshugsana og einmanaleika.

 

Tugir sjálfboðaliða auk starfsmanna Rauða krossins  svara í Hjálparsímann og hafa hlotið til þess þjálfun.

 

Síminn er opinn allan sólahringinn og er ókeypis að hringja í 1717 úr öllum símum.

Nafnleynd og trúnaður er við þá sem hringja.

 

Hjálparsíminn er í samstarfi við Landlæknisembættið, Neyðarlínuna og geðsvið Landspítalans.

 

Maí 2008

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli