Samstarfsaðilar

Vefsvæðið www.umhuga.is  er forvarnarverkefni á vegum Landlæknisembættisins undir stjórn verkefnisins Þjóðar gegn þunglyndi í samstarfi við neðantaldar stofnanir sem eiga það sammerkt að starfa að velferð barna og stuðningi eða meðferð þegar þess gerist þörf.  Samstarfsaðilarnir eru:

 

Samstarfsaðilarnir ákváðu að vinna saman að gerð fræðslu- og upplýsingavefs um geðheilsu barna og unglinga. Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður foreldrum og öðrum uppalendum barna sem glíma við sálrænan eða félagslegan vanda, en einnig almenningi og fagfólki sem vinnur með börnum og ungmennum og loks börnum og unglingum sem sjálf vilja fræðast um þessi efni.

 

Samvinna allra þessara stofnana er mikilvæg til að hlúa sem best að þörfum barna sem glíma við geðrænan vanda, styrkja fjölskyldur þeirra og koma til móts við þarfir þeirra þegar slíkan vanda ber að höndum.

Október 2008

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli