Vímuefni og unglingar

 
Vímuefni og unglingar

Unglingsárin eru tímabil mikilla umbreytinga í lífi hvers einstaklings. Þetta er tímabil þegar einstaklingurinn gengur í gegnum andlegar, félagslegar og líkamlegar breytingar og þeim  fylgir oft öryggisleysi, tilfinningasveiflur og vanlíðan. Af þessum sökum er ekki óalgengt að ungt fólk finni til tilfinninga sem skilgreina má sem kvíða, depurð eða þunglyndi. Þessar tilfinningar geta verið tímabundnar eða langvarandi og eiga sér margar og misdjúpar rætur.

Unglingsárin eru líka tímabil umbrota þegar skapsveiflur eru algengar, ýmist vegna hormónastarfsemi, sjálfsleitar eða baráttu fyrir auknu sjálfsstæði. Skapsveiflur geta einnig verið af öðrum orsökum, s.s. vegna dauðsfalls einhvers nákomins, vinslita eða lélegs námsárangurs.

Auk þessara þátta er algengt að unglingar reyni fyrir sér í heimi fullorðinna, m.a. með neyslu áfengis og annarra vímuefna. Rannsóknir sýna að ákveðin tengsl geta verið milli þunglyndis og neyslu vímuefna (löglegra og ólöglegra). Samkvæmt þeim geta geðraskanir aukið líkur á því að ungt fólk þrói með sér ávanabindandi neyslu vímuefna.

Geðraskanir geta komið af stað slíkri neyslu hjá viðkvæmum einstaklingum eða aukið við neyslu sem fyrir er. Á sama hátt er talið að neysla vímuefna geti haft áhrif á myndun geðraskana. Þunglyndi vegur hér þungt, en á unglingsárunum er þunglyndi algengara hjá stúlkum en drengjum. Talið er að það sé vegna mismunandi aðferða til að takast á við vandamál ásamt hormónabreytingum.

Rannsóknir
Samkvæmt nýjustu könnunum á vímuefnaneyslu nemenda í 10. bekk íslenskra grunnskóla (ESPAD 2007) má sjá að dregið hefur úr neyslu kannabisefna undanfarin ár. Árið 2003 svöruðu tæp 13% nemenda að þeir hefðu einhvern tímann  prófað kannabisefni en árið 2007 svöruðu 9,4% þeirri spurningu játandi. Það eru því rúm 90% nemenda í 10. bekk sem aldrei hafa prófað kannabis.

Ef skoðað er hlutfall þeirra sem segjast hafa notað kannabisefni á síðustu 30 dögum, þ.e. þeirra sem eru skilgreindir reglulegir notendur, lækkar sú tala hægar. Árið 2003 höfðu 3,8% aðspurðra notað kannabis á síðustu 30 dögum en 3,4% árið 2007. Á sama tíma hefur dregið úr ölvunardrykkju í þessum aldurshópi. Ölvunardrykkja síðustu 30 daga hefur lækkað úr tæpum 56% árið 1995 í 21% árið 2007.

Einelti
Ástæða er til að minnast sérstaklega á einelti sem áhættuþátt fyrir vímuefnaneyslu unglinga. Einelti leiðir til félagslegrar útskúfunar, mikillar vanlíðanar og jafnvel þunglyndis. Þessir þættir geta tengst því að neysla hefst snemma á unglingsárum.

Einelti er algengara en margur heldur, tæp 20% grunnskólanema höfðu samkvæmt nýlegri rannsókn verið lögð í einelti undanfarandi nokkra mánuði áður en rannsóknin var gerð. Þótt ríflega þrír af hverjum fjórum nemendum segðu að sér liði almennt vel í skóla voru 23% sem sögðu sér líða hvorki vel né illa, frekar illa eða mjög illa í skólanum. Vegna tengslanna við vímuefnaneyslu er full ástæða til að taka þessi mál fastari tökum.

Heimildir: Sjá heimildalista


 

Október 2008

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli